13.1.2010 | 19:31
Í tilefni síðustu bloggfærslu
Nú var ég skyldugur til að drattast til að rifja upp lykilorðið og blogga hér á þessu annars löngu hunsaða moggabloggi. Það er til sóma að rústasveit Landsbjargar skyldi send með hraði til Hahiti. Vona og veit að þeir skila góðu verki og ég óska þeim alls hins besta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2009 | 07:34
Hvar er íslenska rústabjörgunarsveitin með nýja vottorðið ???
Töluverðu af útsendingarmínutum ljósvakamiðla og dálksentimetrum prentmiðla var spanderað réttilega um daginn þegar íslenska björgunarsveitin fékk vottun sem fullgild rústabjörgunarsveit á heimsmælkvarða og til að koma til að stoðar við aðstæður sem nú eru fyrir hendi í Indónesíu. Áðan heyrði ég á BBC ákall frá Indónesum um að þá sárvantaði hjálp. Hundruð manna væru enn lokaðir af í rústum. Það vantar allt og það strax. Sérstaklega hreint vatn í sjúkarskýlin. Eigum við ekki nóg af því og líka vottað ?? Af stað strax með þetta frábæra björgunarfólk sem við eigum.
http://news.bbc.co.uk/2/hi/asia-pacific/8286246.stm
|
Tala látinna hækkar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2009 | 16:15
Ömurleg staða Rásar 1
|
Minni en skjálftinn í gær |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.5.2009 | 18:16
Bara frábært
Það er engu við þessa grein að bæta. Vestfirðir eru perla Íslands og þessi grein er stórskemmtileg og lýgur engu. Þökkum Guði fyrir að enginn áhugi hefur verið fyrir stóriðju á Vestfjörðum og allir eru búnir að gleyma ruglinu um olíuhreinsunarstöð. Skora á alla þá Íslendinga sem eru að plana ferð um landið í gjaldeyriskreppu að bregða sér nú útaf hringveginum í nokkra daga og heimsækja Vestfirði. Sérstaklega þá sem ekki hafa komið vestur áður. Læt hérna fylgja með mynd tekna á kjötsúpuballi í barnaskólanum á Hesteyri um Verzlunarmannahelgi 2007. Þarna leika fyrir dansi ásamt óþekktum aðdáanda, hin frábæru Vagnsbörn frá Bolungavík með ljúflinginn og einn besta harmonikkuleikara í heimi, snillinginn hann Hrólf Vagnsson fremstan í flokki.
|
Fyrsti G-strengur heims á Vestfjörðum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2009 | 18:06
Fréttamynd ársins
|
Kjörsókn áfram góð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.4.2009 | 12:17
Ónýtur dagur
|
Ófrísk eftir eiginmann Winehouse |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2009 | 17:09
Óorði komið á súrefnið
Þetta er að verða eitt alsherjar Dario Fo leikrit. Tannlæknirinn minn hefur aðstöðu í Valhöll og nú er ég ekki viss um að ég þori í anddyrið á þessu spillingarbæli lengur og þá þarf ég annann tannlækni !
En í öllum bænum sjallar ekki koma óorði á súrefnið eins og þessi gerir með orðunum sem hér fara á eftir,:
"Það er engum betur treystandi til þess að blása súrefni inn í atvinnulífið en Sjálfstæðismönnum."
Grátlegt að sjá þá ætla að fórna drengnum á altari Valhallar meðan sjálfir skúrkarnir sitja sem fastast og boða súrefnis gjöf handa fólkinu. Er ekki þessi flokkur í öndunarvél og af hverju aumkast ekki einhver yfir hann og tekur græjuna úr sambandi. Það færi bara vel á þvi á þessum degi.
|
Andri hættir störfum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.4.2009 | 23:10
Who cares ?
|
Tap Alcoa meira en talið var |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2009 | 23:01
Draumalandið - Mögnuð sorg í Háskólabíó í kvöld
Það er absúrd að ég sé búinn að vera með þessa mynd í hausnum á þessari fátæklegu bloggsíðu þó enn breiðara sjónarhorn hefði tekið steininn úr. Í kvöld upplifði ég eina mögnuðustu skömm á sjálfum mér sem þátttakanda í einni mestu óhæfu gegn náttúru landsins með því að tuða bara í eldhúsinu og gera ekki neitt annað. Samtímis fylltist ég aðdáun á þeim sem þorðu að malda í móinn, hvort sem þeir hétu Ómar Ragnarsson, Vigdís Finnbogadóttir, Björk Guðmundsdóttir, Hákon Aðalsteinsson eða bara ónefndir innlendir og erlendir "atvinnumótmælendur" sem hlekkjuðu sig við trukka og gröfur til að vekja athygli á skemmdarverkinu. Skömm sé svo þeim sem létu blekkjast af fagurgala um nýtt Austurland, óendanlega auðlegð þjóðar og bjarta framtíð hennar sem nú er lítið nema grútartýra í svartholi. Ég las Draumalandið og það er ótrúleg hugvekja. Myndin er ekki síðri. Vissulega er hún gagnrýnin og nötur en veruleikinn er nötur líka eða á ég að segja hann sé martröð! Það nöturlegasta er hve margir eru enn með álglýjuna í augum, það heyrði ég bara rétt áðan þegar stiklað var á stóru frá eldhúsdagsumræðum kvöldsins á Alþingi í fréttatíma RUV. En farvel Valgerður og Geir. Andar unga sem aldrei klöktust út biðja örugglega að heilsa ykkur um alla framtíð. Kvikmyndin Draumalandið er vönduð ádeila og ádrepa til okkar allra um að sofna ekki á verðinum, hvaða skoðanir sem við kunnum að hafa á náttúru landsins og nýtingu hennar. Myndin er öllum þeim sem að henni stóðu til mikils sóma. Ég skora á alla að fara og sjá hana sem fyrst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.3.2009 | 14:00
Íslendingafélag hvað...
Væri alveg til í að þetta sé ekki kallað Íslendingafélag. Þúsundir Íslendinga í alvöru Íslendingafélögum erlendis voru settir út á Guð og gaddinn þegar röndötti þvottakallinn og hans líkar settu allt á hausinn á Íslandi og víðar. Skömm og svívirða. Reynum að fá nafn Íslands þvegið af þessu hlandbraggaliði.
|
Zola vonast til þess að halda Neill |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



fiskholl
johnnyboy99
seinars
gutti
neytendatalsmadur
nafar




